| Modum fellistigar |
Res-Q-Ladder keðjustigar | ||||||||||||
| Parat björgunarlínur |
Ningbo keðjustigar | ||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
MODUM MEL FELLISTIGAR: Festir á húsvegg. Þola 500 kg/m. Þegar stiginn er ekki opinn liggur hann saman felldur að húsinu ekki ósvipaður þakrennuröri. Við opnun falla þrepin 90° ásamt ytri kjálka frá húsinu. Stigarnir eru í einingum sem settar eru saman í þeim lengdum sem óskað er eftir þ.e. ef lengdir eru meiri en 5,4 m. Opnun er möguleg á hverri hæð ef óskað er eftir því. Hverjum stiga fylgir ein opnun efst. Hver opnun opnar stigann niður en ekki upp þannig að óviðkomandi geta ekki notað sér stigann. Hægt er að leggja hjá þakkanti eða brún og eru þá notaðir svonefndir skástigar. Breidd er 40 sm. en lengd milli þrepa er 30 sm. Fáanlegt er öryggisbelti sem rennur niður stigann við notkun. Stigarnir eru állitaðir en hægt er að fá þá t.d. svart eða brúnlitaða og er verð þá hærra. Stigarnir fást í lengdum sem er með 30 sm. mun en hægt er að setja saman hvaða lengd sem er . Ef það er gert að kröfu að vera með trygga flóttaleið um stiga vegna einhverrar starfsemi eru þesssir stigar eina lausnin. Við höfum selt þessa stiga frá árinu 1989 um land allt. |
||||||||||||
|
|
Lengdir eru nokkrar eða frá 1,5 m. til 5,4 m. með 30 sm. á milli.
Svo má setja saman ýmsar lengdir allt eftir þörfum hvers og eins. Við ákvörðun lengdar skal miða við að stiginn standi 50 sm. frá jörðu og 170 til 180 sm yfir þeirri gólfplötu sem fara á í stigann frá. |
||||||||||||
Res-Q-Ladder Keðjustigar |
|||||||||||||
|
|
|||||||||||||
|
|
![]() |
||||||||||||
| Res-Q-Ladder Keðjustigar eru úr stáli í tveimur lengdum fyrir 2 hæðir og þrjár hæðir. Tveggja hæða stiginn er 4,57 m. en þriggja hæða er 7,62 m. Hver stigi er með fjarlægðar stoðir eða pinna til að halda stiganum frá húsinu svo auðveldar megi vera að stíga í þrepin. Efst eru útfellanlegar tvær krækjur sem setja á undir gluggasillu eða sólbekk sem getur verið allt að 25 sm. á breidd. Einnig má festa stigann allt eftir þörfum. Stigarnir þola 500 kg. þunga. Stigarnir eru í pappakössum og eru leiðbeiningar um notkun á kössunum. Hægt er að fá stiga fyrir hærri hús þ.e. 4 til 5 hæða. Res-Q-Ladder Keðjustigi 2 hæðir 4,57 m. Res-Q-Ladder Keðjustigi 3 hæðir 7,62 m. |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
|
Ningbo Keðjustigar í tveimur lengdum 4,5 m. og 7,5 m. Stigarnir eru í kössum með áprentuðum leiðbeiningum um notkun. Þessir stigar á mun betra verði en þeir sem við erum með fyrir en eru ekki á neinn hátt síðri og eru viðurkenndir og CE merktir. Staðallinn nefnist ZH 1/368:1998. Mesti þungi á stiga er 350 kg. Eins og áður hefur komið fram er um tvær gerðir að ræða 4,5 m. langa en breidd þess stiga er 31 sm. Sama á við um 7,5 m. langa stigann breidd hans er einnig 31 sm. Styttri stiginn er hugsaður fyrir 2ja hæða hús en sá lengri 3ja hæða. Fjarlægðarstoðir eru með stigunum sem setja þarf á rétta staði á kjálkum.
|
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
| Nokkrar gerðir eru til af Parat björgunarlínum en sú gerð sem við bjóðum er fyrir heimili, gistihús, opinberar stofnanir og til festingar við glugga eða hurðarop. Björgunarlínan er fest með meðfylgjandi skrúfum við glugga eða t.d. svalahurð þar sem undankomuleið er greið við eldsvoða. Eins má setja upp króka til að festa línuna við þá á mismunandi staði þannig að hægt sé að færa hana á milli. | |||||||||||||
| Parat Björgunarlínan er auðveld í meðförum bæði fyrir unga sem aldna. Þeir sem eldri eru og hafa jafnvel skerta hreyfigetu eiga að geta notað línuna. Eins er hægt að koma meðvitundarlausum til hjálpar og láta þá síga niður. Beltið yfir brjóstið og í gegnum klof tryggir viðkomandi og hemlabúnaður í trissu sér um að viðkomandi fer niður á réttum hraða með aðstoð hjálparmanns sem heldur laust við línuna. Sá sem notar línuna þarf að vera minnst 40 kg. að þyngd. Undir þeirri þyngd þarf viðkomandi að fara niður með öðrum. Hámarksþyngdargeta er 900 kg. en línan þolir allt að 2,3 tonna átak. Þvermál línu er 7mm. Beltið er úr sömu efnum og öryggisbelti í bifreiðum og þolir 1300 kg. |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
| Parat Björgunarlína fyrir tvær hæðir 7 m. lengd. Kassinn er 43x14x5sm. Parat Björgunarlína fyrir fjórar hæðir 13 m. lengd. Kassinn er 43x14x8sm.
Parat Björgunarlína fyrirsex hæðir 19 m. lengd. Kassinn er 43x14x10sm. Parat Björgunarlína fyrir níu hæðir 27 m. lengd. Kassinn er 59x15x8sm. Parat Björgunarlína fyrir fjórtán hæðir 40 m. lengd. Kassinn er 54x20x8sm. |
|||||||||||||
Íslenskar leiðbeiningar með endurskini á umbúðum |
|||||||||||||
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....









