Gasskynjarar

Gasskynjarar eru annað hvort fyrir 12V DC eða 230V/50Hz. Þeir eru ekki til fyrir rafhlöður sem komið er. Ekki búið að finna upp. Allir gasskynjarar sem

Gasskynjarar

Gasskynjarar eru annað hvort fyrir 12V DC eða 230V/50Hz. Þeir eru ekki til fyrir rafhlöður sem komið er. Ekki búið að finna upp. Allir gasskynjarar sem skynja eiga própan eða bútan gas eiga að staðsetjast við gólf. Einnig erum við með sambyggða gas og svefngasskynjara. Sjá neðst á síðunni.


Ningbo gasskynjari 12V DC

 

305250 Ningbo gasskynjari SSA-G-01 er fyrir 12 V DC jafnstraums- spennu. Úttök eru fyrir frekari tengingu við rafliða sem stýrt gætu viftu eða lokað fyrir krana eða eitthvað slíkt. Stærð er 72 x 114 x 39 mm svo hann er lítill um sig.

Prófunarbúnaður er sjálfvirkur og orkunotkun er 1,7W. Straumnotkun er minni 150mA. Vinnuhitastig er -10°C til 50°C.

 

Leiðbeiningar Tenging fyrir 12 V DC

 

Everday 911 gasskynjari 230V/50Hz
305260 Everday Gasskynjari 911 fyrir 230V/50Hz spennu, sem skynjar própan gas. Hentugur fyrir heimili og sumarhús þar sem 230 volta spenna er til staðar. Skynjarinn er með raðliða tengingu og tenging fáanleg sem getur stjórnað gasloka eða auka bjöllu. Stærð156 x 80 x 51mm. Orkunotkun 2,6W.

 

Leiðbeiningar Bæklingur


G-3000 gasskynjari 230V/50Hz og 12V DC

305255 Garvan Gasskynjari G-3000 fyrir 230V/50Hz og 12V DC spennu, sem skynjar m.a. própan og bútan gas. Hentugur fyrir heimilið, sumarhús, hjólhýsi, húsbíla, fellihýsi og báta. Skynjarinn er búinn þeim eiginleika að yfirfara  virkni sína reglulega og sýnir það með  sérstöku ljósi. Skynjarnum fylgir straumbreytir og er sami skynjarinn bæði fyrir 230V og 12V.  Stærð skynjarans er 8,5 x 8,5 x 3,5sm. Orkunotkun 1,7W eða 142 mA. í viðvörun en almennt 1,0W eða 84 mA.

Leiðbeiningar Bæklingur

 

AMS - Gasskynjari P 12V/DC
305280 AMS Gasskynjari P fyrir 12V DC spennu.  Með rofa til að kveikja og slökkva á skynjaranum. Skynjar própan og bútan gas. Hentugur fyrir sumarhús, hjólhýsi, húsbíla, fellihýsi og báta. Rofi til að kveikja og slökkva á skynjaranum. Stærð 5,4sm í þvermál. Hæð 2,2sm. Orkunotkun 2,4W eða 200mA

Leiðbeiningar


AMS - Gasskynjari 112 230V/50Hz

305285 305286 AMS Gasskynjari 112 fyrir 230V/50Hz spennu. EUR kló. Skynjar própan og bútan gas. Hentugur fyrir heimili og sumarhús þar sem 230 volta spenna er til staðar. Stærð 10 x 5 x 4sm. Orkunotkun 4W eða 330mA

Fáanlegur hvort sem er með EUR kló (305285) eða snúru (305286).

Leiðbeiningar


AMS - Gasskynjari 230V/50Hz Gerð S/2


305XXX AMS Gasskynjari S/2 er fyrir 230V/50Hz spennu. EUR kló. Skynjar própan og bútan gas. Hentugur fyrir heimili og sumarhús þar sem 230 volta spenna er til staðar. Ekki á lager.

  • Grænt LED ljós sem sýnir spennu á.
  • Rautt LED ljós sem sýnir viðvörun.
  • Rafstýrð sírena 85 dB (A) / 3 m
  • Rafliða úttak (álagslaust tvöfaldir snertar) 5 A / 230 V AC
  • 12 V DC úttak, kveikir við viðvörun
AMS - Kombialarm gas og svefngaqsskynjari 12V/DC


305289 AMS Gas og svefngasskynjari Kombialarm er fyrir 12V/DC jafnstraum.
Skynjar própan og bútan gas ásamt því að skynja svefngas. Hugsaður fyrir hjólhýsi, húsbíla og flutningabíla með svefnaðstöðu.

  • Gult LED ljós sem lýsir við að kveikja á skynjaranum.
  • Grænt LED ljós sem sýnir spennu á.
  • Rautt LED ljós sem sýnir viðvörun.
  • Rafstýrð sírena 85 dB (A) / 3 m
  • Rafmagnsnotkun um 90 mA í skynjun en 145 mA við viðvörun.
Skynjunin er mjög næm og staðsetning því mjög nákvæm eða 20 sm. fyrir ofan gólf og nálægt gastækjum og/eða kút.


 

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....

Skráning á póstlista

Svæði