Reykskynjarar

Jónískur eða optískur ? Þráðlausir reykskynjarar Grein: Jónískur eða Optískur - Hvor er betri? Jónískir reykskynjarar (stakir á

Reykskynjarar

Jónískur eða optískur ?

Þráðlausir reykskynjarar

Grein: Jónískur eða Optískur - Hvor er betri?

Jónískir reykskynjarar (stakir á rafhlöðum).

Skynja með rafeindahólfi bæði ósýnilegar, lyktarlausar lofttegundir og sýnilegar, sem myndast við bruna á byrjunarstigi. Sérstaklega frá opnum eldi. Háðir loftþrýstingi, rakastigi, hitastigi og loftræstingu. Henta vel í stofur, herbergi, stigaganga, geymslur, geymsluganga og víðar. Það er mjög mikilvægt að hreinsa skynjara með því að ryksuga þá eða blása lofti í þá, sérstaklega optíska reykskynjara. Þeir geta gefið frá sér viðvörunarhljóð í tíma og ótíma ef ryk er í skynjunarhólfi.

EI100B jónískur reykskynjari
305010 EI100B Reykskynjari (jónískur) 9V rafhlaða. M/prufuhnapp, gaumljósi, Ferkantaður 140x120x45mm. Rafhlaða fylgir. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum.

Leiðbeiningar Bæklingur

Orientalert jónískur reykskynjari 9V stakur

305012 (VST-IS588) Jónískur stakur 9V reykskynjari.
Prófunarhnappur, gaumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara. Litlir um sig (11 sm. í þvermál).

Leiðbeiningar Upplýsingar




Optískir reykskynjarar (stakir á rafhlöðum).

Skynja með auga sýnilegan reyk frá t.d. glóðareldi og P.V.C. plastefnum. Óháður rakastigi, hitastigi og loftræstingu. Hentar vel í stofur, herbergi stigaganga, geymslur, geymsluganga og eins ef staðsetja þarf reykskynjara nálægt eldhúsi. Það er mjög mikilvægt að hreinsa skynjara með því að ryksuga þá eða blása lofti í þá, sérstaklega optíska reykskynjara. Þeir geta gefið frá sér viðvörunarhljóð í tíma og ótíma ef ryk er í skynjunarhólfi.

Garvan optískur reykskynjari 305040 GNS-366S Garvan optískur stakur með 9V rafhlöðu 85 dB/ 3 m., blikkljós og stór prufuhnappur. Þöggunarhnappur. Viðvörun þegar rafhlaða er að verða búin. Rafhlaða fylgir. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.
Jabo optískur reykskynjari 305045 JB-SO2 Jabo optískur stakur og er þvermál skynjarans 107 mm og þykkt 35mm. Umhverfishitastig -10°C til 50°C. Bíb hljóð 85 dB/3 m. Prufuhnappur og gaumljós. Lætur vita þegar rafhlaða er að verða búin. 9V Carbon Zink rafhlaða. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.

Leiðbeiningar Bæklingur yfir sömu
gerð en með 5 ára rafhlöðu til
Orientalert optískur reykskynjari 9V stakur 305050 (VST-S588) Optískur stakur 9V reykskynjari.
Prófunarhnappur, gaumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara. Litlir um sig (11 sm. í þvermál).

Leiðbeiningar Upplýsingar

EI105B optískur reykskynjari

305055 EI105B
Reykskynjari (optískur) 9V rafhlaða. M/prufuhnapp, gaumljósi, Ferkantaður 140x120x45mm. Rafhlaða fylgir. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum.

Leiðbeiningar Bæklingur

Hitaskynjarar (stakir á rafhlöðum).

Skynja breytingu á hita í umhverfi. Hitamörk 54°C til 62°C. Henta vel þar sem ekki er hægt að nota reykskynjara svo sem í bílageymslur, sorpgeymslur og þvottahús

Garvan hitaskynjari
305070 Garvan SS-163 Hitaskynjari m/prufuhnapp og gaumljósi. Hringlaga lítill 10 sm. í þvermál. Þvermál skynjara er 10,8 x 4,2 sm. Hitamörk 54° C til 62°C.9V rafhlaða. Rafhlaða fylgir. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum.

Leiðbeiningar Bæklingur

Ningbo Starkin hitaskynjari 305070 Ningbo SSA-H-01 Hitaskynjari m/prufuhnapp og gaumljósi. Hringlaga lítill 10 sm. í þvermál. 9V rafhlaða. Rafhlaða fylgir. Þvermál skynjara er 10,8 x 4,2 sm. Hitamörk 54° C til 62°C. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum.

Leiðbeiningar

Orientalert hitaskynjari 9V stakur 305072 (VST-H588) Stakur 9V hitaskynjari.
Prófunarhnappur, gaumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara. Litlir um sig (11 sm. í þvermál).

Leiðbeiningar Upplýsingar

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....

Skráning á póstlista

Svæði