Við verð og gæðasamanburð skoðið slökkvimátt tækjanna þ.e. hversu mörg
A og B tækin hafa. Því hærri því meiri slökkvimáttur.
|
Vatnstæki eru í einni stærð þ.e. 9 lítra. Þau eru eingöngu á A elda eða tré og pappír. Tækin eru hlaðin með vatni og köfnunarefni. Sem stendur bjóðum við ekki vatnstæki þar sem léttvatnstæki eru komin í stað þeirra. Verðmunur er enginn.
|
| Léttvatnsslökkvitæki eru til í tveimur stærðum 6 og 9 lítra. Þau eru á A elda eins og vatnstækin en einnig á B elda. Þau eru sérstaklega öflug á eldfima vökva. Léttvatnið myndar filmu yfir eldmatinn og hindrar að það kvikni í aftur. Til eru gerðir sem einnig eru á C elda. Léttvatnstæki má nota á rafmagnselda að 1000V í allt að 1s m. fjarlægð en gæta skal sérstakrar varúðar. Tækin eru hlaðin með vatni og léttvatni í ákveðnum hlutföllum. Köfnunarefni er þrýstigjafinn. |
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....







