Við höfum frá miðju ári 1990 boðið og selt slökkvibifreiðar. Fram til dagsins í dag, höfum við selt alls 38 slökkvi og björgunarbifreiðar byggðar hjá Rosenbauer (Egenes) AS í Flekkefjörð í Noregi og ISS-Wawrzaszek í Póllandi. Stór hluti þess lausa búnaðar sem er í bifreiðunum er frá okkur. Einnig höfum við selt verðmætabjörgunar- gáma, slöngugáma og vatnstanka frá sömu aðilum. Sjáið frekari upplýsingar undir hnappnum slökkvibifreiðar til vinstri.
ISS-Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi byggir eftir evrópskum stöðlum og eru flestar bifreiðar byggðar eftir EN 1846-1 staðli. Sá búnaður sem er í bifreiðinum er evrópskur og af þeim gerðum sem vel eru þekktar hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Þórshöfn, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Egilsstöðum, Selfossi, Ísafirði, Ólafsvík, Borgarnesi, Sauðárkróki, Árnesi, Laugarvatni, Þorlákshöfn og Reykholti Biskupstungum. Dælur þær sem við höfum lagt áherslu á að selja í bifreiðunum og höfum selt eru sambærilegar við þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli sem við seldum.
ISS-Wawrzaszek er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið nema körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 350 talsins. Á ári hverju eru seldar um 250 til 500 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu.
Hér koma svo myndir og teikningar af ýmsum gerðum slökkvibifreiða.
| TLF3500/150 Renault Midlum 280.14 4x4 3.335mm. Einfalt ökumannshús 3.500 l. vatnstankur. 7 skápar. |
| TLF3000/150 Renault Midlum 280.14 4x4 3.980mm. Tvöfalt ökumannshús 3.000 l. vatnstankur. 7 skápar. |
| TLF1000/100 Renault Mascott 160.6 4x2 4.135mm. Tvöfalt ökumannshús 1.000 l. vatnstankur. 5 skápar. |
| Teikningar og upplýsingar um vagna fyrir lausar dælur, ýmsan búnað eða t.d. spilliefnaaðgerðir. |
| Myndir og upplýsingar um vatnstanka úr trefjaplasti á gámagrindum |
|
|



