Nítjánda bifreiðin er Ford/Rosenbauer slökkvi og björgunarbifreið. Bifreiðin er af gerðinni Ford 550XLT 4x4 sjálfskipt með tvöföldu húsi.
Í yfirbyggingu sem er byggð úr áli og plasti er vatnstankur 800 ltr, froðutankur 100 l., Rosenbauer NH20 háþrýst og lágþrýst dæla 2000 l. við 10 bar og 200 l. við 40 bar, dælan er knúin af Hatz diesel vél og því óháð bílvélinni, inntak 4" úttök 2 1/2" og 1 1/2" öll með Storz tengjum.
Froðublandari fyrir há og lágþrýsting er sambyggður við dælu. Rafdrifið háþrýstislöngukefli með 50 mtr ¾" slöngu, loftdrifið ljósamastur 4,6 mtr. með 3 x 500W kösturum, dráttarspil með festingum að aftan og framan.
Bifreiðin kom með festingum og innréttingum frá framleiðanda svo sem, útdregnum festingum fyrir reykköfunartæki og aukakúta, skúffu fyrir ofan dælu, föstum hillum, útfellanlegum verkfæravegg, snúningspalli fyrir björgunartæki og festingum fyrir ýmsan búnað. Hér voru settir tveir Ziamatic reykkafarastólar í bifreiðina
Ýmis tæki og búnaður er í bifreiðinni m.a. ný Holmatro björgunartæki Búnaðurinn samanstendur af dælu með tveimur slönguhjólum með 25 m. slöngum í grind á snúanlegum palli sem drífur tvö tæki samtímis, aukadælu af gerðinni TPU15 sem er létt og meðfærileg dæla, klippum, glennum, tjakk, pedalaklippum og fl.
Öllum búnaði hefur verið einstaklega vel fyrir komið og þess gætt að ofhlaða ekki skápa og að þægilegt sé að nálgast búnað og stjórntæki.
Tuttugasta og önnur bifreiðin er árgerð 2001 af gerðinni Rosenbauer/Scania. Bifreiðin er byggð á Scania P94 4x2 með tvöföldu áhafnarhúsi, 310 hestafla Euro3 vél, sjálfskiptingu, spólvörn, driflæsingu að aftan, ABS hemlum og stillanlegri loftpúðafjöðrun.

