Slökkvilið Akureyrar 10

Ný slökkvibifreið af gerðinni Rosenbauer Buffalo fyrir Slökkvilið Akureyrar. Þetta er önnur slökkvibifreiðin sem við höfum selt til Slökkviliðs

Slökkvilið Akureyrar 10


Ný slökkvibifreið af gerðinni Rosenbauer Buffalo fyrir Slökkvilið Akureyrar.


Þetta er önnur slökkvibifreiðin sem við höfum selt til Slökkviliðs Akureyrar. Upplýsingar um þá fyrri eru hér.

Í bæklingi eru allar frekari upplýsingar um nýju bifreiðina en hér er stutt lýsing.

Undirvagn er af gerðinni Mercedes Benz MB 3350/6x4 Actros MP2 með 503 hestafla V8 með sjálfvirkri skiptingu. Ökumannshús af M gerð.

Vatnstankur er 9.000 l. og froðutankur er 1.000 l.

Brunadælan er af gerðinni Rosenbauer R600 7.000 l/mín við 10 bar. Froðubúnaður sjálfvirkur RVMA500 ND.

Á þaki er úðabyssa af gerðinni Rosenbauer RM60E (með afköst allt að 7.000 l/mín og 95 m. kastlengd) og á stuðara RM8E (með afköst allt að 1.000 l/mín og 42 m. kastlengd) báðum stýrt úr ökumannshúsi.

Af aukabúnaði má nefna bakkmyndavél, loftstýrt mastur með 4 ljóskösturum 1000W ofl.

Frekari upplýsingar eru á vefsíðu Slökkviliðs Akureyrar.

Hér eru svo fleiri myndir f slökkvibifreiðinni, skápum og búnaði. Frá prófun á bifreiðinni í höfuðstöðvum Rosenbauer og svo ferðalaginu heim til Akureyrar.


Skráning á póstlista

Svæði