Albatros fatnaðurinn er framleiddur úr efnum frá framleiðendum eins og DuPoint Nomex, Kermel, 3M, YKK ofl. Ysta lag er úr Nomex efnum eða Kermel efnum. Undirefni eru m.a. FR Liner vatnsvarnarlag. Aðallega er um tvær gerðir að ræða og fara upplýsingar um þær hér á eftir. Við getum einnig keypt þau snið, sem við höfum verið með, en verð er allbreytt.
Sá fatnaður sem við höfum flutt inn og selt í um 20 ár er gerður úr þreföldu Nomex efni (DuPoint) og með vatnsvarnarlagi (öndunarefni) m.a. af svonefndri FR-Liner gerð. Ysta Nomex efnið er 265 g. Það næsta er lausprjónað hvítt 240 g. og áfast innsta fóðrinu sem er hvítt 140 g. Hægt er að renna úr vatnsvarnarlagi og Nomex fóðrinu úr kápu, stuttjakka og hálfsíðukápunni en ekki samfestingnum. Að aftan eru allar buxur eru úr tveimur Nomex lögum og einu vatnsvarnarlagi en að framan úr þremur Nomex lögum og einu vatnsvarnarlagi. Allir saumar eru úr Nomex efni og vatnsvarnarefni er með yfirlímdum saumum. Vasar, hankar eða þess háttar er ekki saumað nema í ysta lagið til að tryggja vatnsvörn. Efnin hafa öll ákveðið þol gagnvart hita og við uppbyggingu fatnaðarins er snið haft þannig að allt vinni saman til tryggingar gegn hita og bruna.
Albatros hlífðarfatnað er fá með mismunandi sniði þ.e. Ísland síð kápa og mittisbuxur, Ísland samfestingur, Keflavík stuttjakki og háar buxur, Reykjavík hálfsíð kápa og háar buxur að aftan og framan og svo Dominanto síð kápa (appelsínugul) og mittisbuxur (bláar).
|
Albatros Reykjavík |
Fatnaðurinn er fáanlegur í dökkbláu, svörtu, rauðu, gulu og appelsínrauðu Nomex efni með 50 mm. endurskini (kemur fram á teikningu). Velja má saman liti.
Á hálfsíðri kápu (Reykjavík) eru að auki styrkingar úr Kelvar efnum á olnbogum og við úlnlið. Bak er með fellingum svo auðveldara sé að hreyfa sig. Hærri kragi. Buxur (Reykjavík) eru að auki með Kelvar styrkingu á hnjám og eins á skálmum. Skálmar eru styttri að aftan svo komast megi hjá því að stíga í þær. |
|
Albatros Ísland |
Á kápu (Ísland) er rennilás, franskur rennilás í hálsmáli (10 sm kragi) og niður að framan, tveir vasar, vasi á innra byrði, stroff í ermum, hanki fyrir ljós og hanki fyrir hanska. Rennilás á ermum. Talstöðvarvasi. Vösum er lokað með frönskum rennilás. Finnsk hetta undir hjálm og krosssaumuð styrking á öxlum (fimm lög af nomex efni). |
|
Albatros Ísland samfestingur |
Á samfestingnum (Ísland) eru vasar á lærum, brjóstvasi, hanki fyrir hanska, hanki fyrir ljós, talstöðvarvasi, stroff í ermum, mittisband, hnépúðar í vasa með frönskum rennilás, franskur rennilás í hálsmáli (10 sm kragi) og niður að framan, rennilás á skálmum (franskur) og ermum. Vösum er lokað með frönskum rennilás Finnsk hetta undir hjálm og krosssaumuð styrking á öxlum (fimm lög af nomex efni). |
|
Albatros Keflavík |
Í stuttjakka (Keflavík) er rennilás, franskur rennilás í hálsmáli (10 sm kragi) og niður að framan, tveir vasar með ská opnun og víkkun, vasi á innra byrði, stroff í ermum og hanki fyrir hanska. Rennilás á ermum. Talstöðvarvasi. Vösum er lokað með frönskum rennilás. Krosssaumuð styrking á öxlum (fimm lög af nomex efni). Sérstakt vatnsvarnarlag (FR-Liner) er fyrir innan ysta byrðið og fóður er áfast lausprjónaða Nomex fóðrinu. Þessu hvoru tveggja er hægt að renna úr. Teygja í mittið. Hægt að fá finnska hettu undir hjálm. Buxur (Keflavík) sem eru háar að framan og aftan eru hnépúðar í vasa með frönskum rennilás og hægt að fá sérstaka vörn (Nomex) yfir ysta Nomex efnið, vasar á lærum (hægt að fá með víkkun), axlabönd með smellum að framan og saumuð aftan, rennilás (buxnaklauf) og teygja í mitti. |
|
Albatros Dominanto |
Einfaldur og ódýr eldfatnður sem uppfyllir staðal. Tvær gerðir með eða án vatnsvörn. Staðlaðar stærðir. |
| Albatros bæklingur (Ísl) |
Albatros bæklingur (enskur) |
Albatros bæklingur (danskur) |
Albatros máltöku- blað |
Albatros stærðir |
Fatnaðurinn er viðurkenndur samkvæmt EN 469 (IST EN469) og Lloyds London. Viðurkenning Brunamálastofnunar 1998:25.
Eftirfarandi slökkvilið, útgerðir og aðrir aðilar eru með ALBATROS fatnaðinn af þeim gerðum sem að ofan greinir. Hér er ekki tæmandi listi en nefndir eru um 68 aðilar og m.a. eru það stærstu slökkviliðin og helstu útgerðir.
Akranes, Akureyri, Blönduós, Blönduvirkjun, Bolungarvík, Borgarnes, Brunamálastofnun, Búðardalur (Dalabyggð), Dalvík, Drangsnes, Egilsstaðir, Egilsstaðir (Flugmálastjórn), Eimskipafélag Íslands, Eskifjörður, Eyjafjörður, Fiskafurðir útgerð, Fiskiðjan Skagfirðingur, Fáskrúðsfjörður, Flúðir, Grenivík, Grindavík, Grímsey, Grundarfjörður, Gullberg útgerð, Hafnarfjörður, Hella, Herjólfur, Hólmavík, Húsavík, Hvammstangi, Hveragerði, Ísafjörður, Íslenska Álfélagið, Íslenska Járnblendifélagið, Keflavík, Keflavíkurflugvöllur, Kjalarnes, Landhelgisgæslan, Neskaupsstaður, Patreksfjörður, Reykjavík, Reykjavíkurflugvöllur, Sandgerði, Sauðárkrókur, Sauðárkróksflugvöllur, Selfoss, Seyðisfjörður, Siglufjörður, Samherji, Slysavarnafélag Íslands (Sæbjörg), Stöðvarfjörður, Sultartangavirkjun (Landsvirkjun), Tálknafjörður, Vatnsfellsvirkjun (Ísafl), Vestmannaeyjar, Vestmanneyjaflugvöllur, Vopnafjörður, Þormóður rammi/Sæberg og Þórshöfn.
Sumir þessara aðila eru einnig með eldri gerðir sem ekki eru með vatnsvörn og ekki með sams konar fjölda Nomex efna í uppbyggingu fatnaðarins og á ofangreind lýsing ekki við þann fatnað.











