
Við höfum allt frá árinu 1963 flutt inn og selt sprengiefni og tilheyrandi búnað frá Noregi í samvinnu við Orica Norway AS (áður Dyno Nobel ASA). Við höfum í gegnum tíðina aflað okkur mikillar þekkingar á málum sem viðkoma sprengingum hvort sem er á landi eða neðansjávar og reglum sem lúta að meðhöndlun, notkun, og flutningi sprengiefna. Um margra ára skeið sá fyrirtækið um námsskeiðshald fyrir verðandi sprengimenn og voru þau námskeið vel sótt.
Við nánast allar framkvæmdir hérlendis hvort sem það er vegagerð, virkjun, hafnargerð eða önnur mannvirkjagerð er þörf sprengiefna. Á þessu tímabili höfum við komið að nánast öllum verkefnum þar sem þörf hefur verið á sprengiefnum og þess vegna öðlast mikla og verðmæta reynslu.
Hér á síðunum yfir sprengiefni eru settar inn helstu upplýsingar en mest verður vísað í erlendar upplýsingar.
Kynningarmyndir þær sem vísað er í á hnöppunum hér að neðan erum mjög þungar og tímafrekar í hleðslu.

| Einfaldur útreikningur |
| Bergið, borun, sprengihleðsla, tímasetning og hætta á grjótkasti, |
| Öryggi, heilsa og umhverfi |
| Kynningarmynd - Exel-Nonel Unidetkveikjur |
| Kynningarmynd - Exel-Nonel LP kveikjur |
.gif)






