Við erum með ýmsan búnað á nokkuð góðu verði til að fást við kjarr og skógarelda.
Í stuttu máli er hér um að ræða léttar brunadælur, keðjusagir, öfluga blásara (vindbyssu - nýjung) og rafstöðvar. Vélarnar í þessum búnaði eru framleiddar af Linhai Products en þeir eru m.a. í samvinnu við framleiðanda Yamaha vélhjóla.
Sú auking sem orðið hefur í skógrækt þ.e. nytjaskógarrækt hérlendis kallar á aukinn búnað slökkviliða og vildum við því auka úrval okkar með búnaði sem þessum . Við erum sem áður með ýmsan annan búnað í kjarr og skógarelda en hluta hans má sjá neðst á síðunni.
Brunadæla af gerðinni JBQ 4.8/8.8 (GX390K). Vnr. 374330 Létt eða um 55 kg. Loftkæld, fjögurra strokka 13 hestafla vél (3.600 sn/mín). Magnettu kveikja, handstart og rafstart. Rafgeymir fylgir. Eldsneytisgeymir tekur 1,1 l. og eyðsla 0,3 l. á klst. Afköst 584 l/mín. Hámarksþrýstingur 5,5 bör. Hámarkssoghæð 7m. Uppsog 7 sek úr 7 m. hæð. Úttak 65mm og inntak einnig af sömu stærð. Stærð 480 x 600 x 500mm. Inntak er með B75 tengi en úttak með C52 tengi. |
|
Rafstöð af gerðinni SPG2700. Vnr. 374335 Vélargerð SPE175. Vél 5,5 hestöfl. Afköst 2 kW/50Hz.en hámarksafköst 2,2 kW Handstart, eins fasa. Tvær innstungur. 12V 8,3 A tenging. Stærð eldsneytistanks 12 l. Þyngd 41,5 kg. Stærð 516 x 416 x 425mm. |
|
Vindbyssa 6MF-30. Vnr. 374345 Þessi búnaður er nýjung hérlendis að við teljum. Búnaður til að blása á eld :) Vélarstærð er 6 hestöfl og handstart. Þyngdin er 9,5 kg, Stærð 1040 x 310 x 410mm. Afköst er vindur eða blástur á hraða 30m/sek í 2,5 m. fjarlægð. |
|
Keðjusög YD-65 (6200) Vnr. 374340 Tveggja strokka vél, loftkæld. Vélarstærð 62 cc. 3,2 kW. Hámarkssnúningur 12000 sn/mín. Eldsneytistankur 670 ml. Þyngd 7,5 kg. Stærð 915 x 240 x 300mm með blaði. |

