Weenas eldfatnað erum við með úr tveimur efnum þ.e. úr Nomex efnum og PBi Kevlar efnum. Nomex efnið er velþekkt en svo er einnig með Kevlarefnið. Nomex efnið er þó lang algengasta efnið í eldfatnaði og mesta reynsla af. Wenaas fatnaðurinn er frá Noregi og erum við einnig með ýmsan annan fatnað frá þeim eins og samfestinga fyrir sjúkraflutningamenn og svo undirfatnað úr Merino ull. Það allra besta undir eldfatnað.
| WENAAS Nomex Hlífðarfatnaður |
WENAAS Pbi-Kevlar Hlífðarfatnaður |
WENAAS Pbi-Kevlar Hlífðarfatnaður
WENAAS Pbi-Kevlar![]() |
Hlífðarfatnaður fyrir slökkviliðsmenn. Fatnaðurinn er gerður úr Pbi/Kevlar efnum og með GORE-TEX vatns og öndunarvörn. Snið er í líkingu við þann fatnað sem við nefnum REYKJAVÍK þ.e. hálfsíður jakki með bak síðara. Buxur eru smekkbuxur. Fatnaðurinn í venjulegri útfærslu og sniði er vel búinn vösum, endurskinsmerkjum, krækjum fyrir hanska og maska og svo frönskum rennilás og krækjum til lokunar. Fatnaðurinn er norskur og venjulega stuttur afgreiðslutími. Verð er hagstætt miðað við fatnað úr þessum efnum og af þessum gæðum. | ||||||||
![]() |
Litur er gulleitur sem er litur efnisins. Það er því ekki hætta á að brenna lit úr efni og vel er sýnilegt þegar fatnaður verður óhreinn. Góð lokun er í háls. Styrkingar með fóðrun á öxlum. Tveir vasar fyrir fjarskiptabúnað í jakka ásamt tveimur öðrum hliðarvösum og svo er einn vasi að innan ásamt tveimur vösum fyrir hanska að innan. Stroff fyrir þumalfingur. Pbi efnisstyrkingar á neðri hluta erma að aftan og frá hné og niður að framan (svart efni). Rennilás og franskur rennilás til lokunar á jakka og buxum ásamt krækjum á jakka. Á baki jakka er öryggisbeltis festing þ.e. heilt stykki yfirsaumað til að verja öryggisbelti fyrir hita. | ||||||||
![]() |
|
||||||||
WENAAS Pbi-Kevlar![]() |
Buxur þrengdar í mittið með snúru. Tveir hliðarvasar á buxum. Sérstakur vasi fyrir hníf eða annað neðst á skálm. Hægt að þrengja skálmar með snúru (snjó og vatnsgildra). Neðst á jakka og buxum og eins í ermum er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar. Buxurnar koma með tilbúnu sniði fyrir sigbelti sem er svo rennt í þar til gerðan rennilás. Hér hjá okkur í Sundaborg eru sýnishorn sem ykkur er velkomið að líta á eða ef áhugi er á að fá sent til ykkar. |
||||||||
| Stærðir jakka | Stærðir buxna | ||||||||
| Stærðir jakka í sm. | Stærðir buxna í sm. | ||||||||
| Meðferð | |||||||||













