| Profile Vehicles OY í Finnlandi er stærsti yfirbyggjandi sjúkrabifreiða í Norður–Evrópu. Hér er um mjög vandaða framleiðslu að ræða. Alvöru fyrirtæki. Þeir smíða ekki eingöngu sjúkrabifreiðar heldur einnig farþegaflutningabifreiðar, lögreglubifreiðar, stjórnandabifreiðar, brynvarðar bifreiðar og bifreiðar fyrir finnska herinn. Sjá bækling um fyrirtækið. | ||
| Fyrirtækið er í Iilsalmi í Finnlandi. Starfsmenn eru um 100 talsins og framleiðsla þeirra á síðasta ári voru 400 bifreiðar. Framleiðslan fer fram í nokkrum löndum. Fyrirtækið er stærsti framleiðandi sjúkrabifreiða í norðanverðri Evrópu. Af heimamarkaði eiga þeir um 85% og hafa selt á þeim markaði um 2500 bifreiðar. Nýjustu byggingaraðferðir þeirra eru Genios á Sprinter og VW Crafter . Sjá bækling og Neo á VW Transporter. Sjá bækling. |
||
| Innréttingar eru mjög vandaðar og eru fjöldaframleiddar sem gerir alla þjónustu auðveldari. Hér eru myndaalbúm af Genios og Neo til fróðleiks af heimasíðu Profile. Í eigu fyrirtækisins eru fyrirtækin Profile Component Svíþjóð AB, Profile Vehicles Baltic, Profile Special Vehicles Uk Ltd. og hlutur í Crossmobil GmbH og eins hlutur í Profile vehicles Lativa. Útflutningur er til margra landa eins og Eystrasaltslandanna, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur, Færeyja, Íslands, Rússlands, Saudi Arabíu og Þýskalands. |
||
| Þeir eiga samstarf við De Vries Ambulances í Hollandi með sérstakan rafbúnað Profile IWS - CAN BUS sem er rafbúnaður fyrir m.a. sjúkrabifreiðar þar sem með fyrirskipun má gera bifreiðina tilbúna við mismunandi aðstæður. T.d. við brottför af stöð þá er ýtt á rofa og þá kvikna blá ljós, sírena, loftræsting fer í gang o.fl. Þegar komið er á slysstað er ýtt á rofa og þá slökknar á sírenu vinnuljós kvikna breyting verður á hitastigi ofl. Allt eftir því hvernig viðkomandi viðskiptavinur vill stilla kerfið. |
||
| Þeir framleiða líka sjúkrabifreiðar með kassayfirbyggingu og á þessi gerð miklum vinsældum að fagna m.a. í Bretlandi. Helstu undirvagnar eru Sprinter og VW LT. Pláss er mikið og yfirbyggingin er mjög rennileg í samanburði við amerískar kassa yfirbyggingar. Sjá bækling. Hér er einnig myndaalbúm. |
![]() |
|
| Hjá Profile Vehicles OY er byggt yfir ýmsar gerðir bifreiða eins og Mercedes Benz Sprinter, Vito, VW-Transporter, VW-LT, VW Crafter, Ford Econoline, Ford Transit, Chevy Van, GMC ásamt fleiri gerðum. Sjá bækling. |
||
| Framleiðslan er um 350 til 400 sjúkrabifreiðar á ári fyrir þá markaði sem þeir eru þegar á. Nú er að skapast meiri framleiðslugeta með breyttum aðferðum og tilkomu meiri tækini við framleiðslu. Mikil áhersla er lögð á þjónustu og eins samband við viðskiptavini (after sales service). Fyrirtækið byggir samkvæmt evrópustöðlum. | ||
|
|
Sjá nánar heimasíðu Profile þar sem m.a. er hægt að sjá hringmyndir í sjúkrabifreiðum. Sjá einnig afhendingu sjúkrabifreiða til Rauða Kross Íslands. | |
| Við teljum að hér sé verulega vandaða framleiðslu að ræða enda væri þessi framleiðandi ekki í samstarfi við virtustu framleiðendur undirvagna fyrir slíkar bifreiðar ef ekki væri svo. | ||








