|
Við höfum því miður ekki uppfært upplýsingar af heimasíðu Trellchem um nokkurt skeið og bendum ykkur á að sækja upplýsingar um eiturefnabúninga þangað. Á síðuna vantar m.a. upplýsingar um EVO sem kemur í stað HPS búninga og NEO búningar sem koma í stað TLU búninga. Við höfum sett inn nýjustu bæklingana þar sem það á við.
Á meðan að svo er þá setjum við inn helstu upplýsingar hér á eftir og eins er hægt að sækja sér nýja bæklinga með að smella á hlekkina hér fyrir neðan. Með búningunum fylgir leiðbeiningartafla um hvaða efni búningurinn þolir, hve lengi og áhrif á búningin. Nefna má að allir búningarnir þola ammoníak í tæpar tvær klst. Loftloki 2/30 l/mín. Eða 30/100 l/mín. Með hverjum búningi fylgja hanskar, loftloki, taska, herðatré og smurefni á rennilás.
Allir viðurkenndir samkvæmt prEN 943. CE Merking. TE stendur fyrir eiturefnabúning þar sem reykköfunartæki eru borin innan í búningnum en T stendur fyrir ef tækin eru borin utan á búningnum. Stærðir XS, S, M, L, XL og XXL. Sama verð á öllum stærðum. Allir búningar eru viðurkenndir annað hvort samkvæmt EN eða NFPA stöðlum þar sem það á við. Allar gerðir CE merktar. Hér er viðurkenning SEI.
|
Við höfum sett inn bæklinga á síðuna en hver bæklingur sýnir aðeins eina gerð af búning. T.d. T eða TE gerð en svo er líka til í hvorri gerð ET og VP1 útfærsla ásamt fleiru. |
| Trellchem HPS (High Performance) eiturefnabúningar eru úr polyamíðefni húðuðu með viton og butyl gúmmíefni að utan en að innan er polymer vörn (Rauðir). Henta fyrir slökkvilið, eiturefnasveitir og efnaiðnað. Viðurkenning EN 943 I/II. NFPA 1991 útgáfu 1994. EVO kemur í staðinn fyrir HPS gerðir. Bæklingur yfir allar EVO gerðir Nýr bæklingur yfir EVO gerðir Bæklingur yfir HPS T ET gerð Bæklingur yfir HPS TE ET gerð |
|
| Trellchem VPS (Optimal Chemical Protection) eiturefnabúningar eru úr polyamíðefni húðuðu með chloroprene gúmmíefni að utan en að innan er polymer vörn (Gulir). Henta fyrir slökkvilið, eiturefnasveitir og efnaiðnað. Viðurkenning EN 943 I/II. NFPA 1991 útgáfu 1994. Bæklingur yfir allar VPS gerðir |
|
| Trellchem Super TS eiturefnabúningar eru úr polyamíðefni húðuðu butyl gúmmíefni að utan og innan en að utan er butyl efnið húðað með viton efni (Gulir). Henta fyrir slökkvilið, eiturefnasveitir, efnaiðnað og útgerð. Viðurkenning EN 943 I/II. Bæklingur yfir allar Super gerðir |
|
| Trellchem Light TL eiturefnabúningarnir eru úr polyamíðefni húðuðu PVC plastefni beggja megin (Rauðir). Henta í efnaiðnað og útgerð. Viðurkenning EN 943 I. Bæklingur yfir allar Light gerðir |
|
| Trellchem TLU (Limited Use) eiturefnabúningarnir eru úr polyamíðefni með polymer vörn beggja megin (Hvítir). Henta fyrir slökkvilið, eiturefnasveitir og efnaiðnað. TLU-A er hlífðarbúningur úr efni sem er trefjar úr áli og trefjaplasti. Viðurkenning EN 943 I/II. NFPA 1991 útgáfu 1994. NEO gerðir koma í staðinn fyrir TLU. Bæklingur yfir allar NEO gerðir |
|
Þær gerðir sem hafa stafina ET eru viðurkenndar samkvæmt ET staðli (Emergency Team) pr943 II en það eru gerðirnar HPS (EVO), VPS, Super og TLU (NEO). Helsti munur er þ.e. ef búningur með stígvél þá eru stígvélin úr svörtu nítríl gúmmíi (slökkviliðsmannastígvél) í stað gulra PVC stígvéla. Viton húðaður rennilás með tennur sem snúa inn. Í þeim búningum sem reykköfunartæki eru borin inni í búniningum (TE) er sérstök vörn í kringum tækin svo búningurinn verði ekki fyrir skemmdum. Sérstakar slöngur eru fáanlegar til tengingar við loftloka og við reykköfunartæki eða utanaðkomandi loftlínu til kælingar eða til að hindra móðumyndun. Til eru slöngur við Scott, Interspiro, Fenzy, Drager, MSA-Auer ofl.
Búningarnir eru afgreiddir með herðatré en hægt er að fá utan um þá svarta poka at tveimur gerðum, þunna og svo sterkari og vandaðri. Eins eru til sérstakar töskur. |
| Nefna má fleiri gerðir eins og svartan VPS búning sérstaklega hugsaðan fyrir víkingasveitir. Sjá bækling. Annan búning í tveimur hlutum til varnar í efnahernaði. Sjá bækling. Sérstakan búning fyrir sjúkrahús og slíkar stofnanir. Sjá bækling. |
|
|
| TRELLCHEM SPLASH Eiturefnabúningar Efnabúningarnir eru úr Polyamide eða Polyester plastefni. Þeir eru eingöngu hugsaðir sem skvettuvörn og eru ekki gasþéttir eins og HPS, VPS, Super, Butyl, Light eða TLU eiturefna- búningarnir. Flestir til notkunar með eða án reykköfunartækja. Stærðir S, M, L og XL. Sama verð á öllum stærðum. CE Merking. |
|
|
| TRELLCHEM SPLASH 400 Efnabúningar úr Polyamide (þakið PVC á annan flötinn). Gulir að lit. Saumar soðnir. Rennilás með yfirstykki að framan.Tvöfalt efni í ermum og skálmum. Hlífar á hnjám og olnboga. Sérstök styrking á bakstykki. Alhliða notkun og einnig með reykköfunartækjum. |
![]() TRELLCHEM SPLASH 600 Efnabúningar úr Polyamide (þakið PVC á annan flötinn). Eldtefjandi PVC. Rauðir að lit. Soðnir saumar. Rennilás með yfirstykki að framan. Annað hvort með háum kraga eða hettu. Alhliða notkun þar sem ekki er þörf á reykköfunartækjum. Splash 600 Bæklingur |
![]() TRELLCHEM SPLASH 900 Efnabúningar úr Poliamide (þakið PVC á annan flötinn). Gulir að lit. Soðnir saumar. Vandaður rennilás með yfirstykki að aftan. Tvöfalt efni í skálmum. Hanskar áfastir ermum. Loftloki. Alhliða notkun með reykköfunartækjum og hetta með neoprene þéttingu fyrir maska. Hugsaðir fyrir aðstoðarmenn þeirra sem vinna í eiturefnabúningum (lokuðum). Splash 900 bæklingur |
![]() TRELLCHEM SPLASH 1000 Efnabúningar tvískiptir þ.e. anorakkur og buxur úr Polyester (þakið PVC á annan flötinn). Gulir að lit. Soðnir saumar. Hanskar áfastir ermum. Tveir loftlokar. Eldtefjandi PVC efni. Stillanlegir rennilásar á skálmum. Auðvelt að smeygja yfir hlífðarfatnað. Alhliða notkun með reykköfunartækjum inni í búningnum. Ein stærð. Splash 1000 gerðirnar Bæklingur |
![]() TRELLCHEM SPLASH 2000 Efnabúningar úr Polyester (þakið PVC á annan flötinn en valmöguleiki á VPS efni ). Gulir að lit. Soðnir saumar. Rennilás vatnsþéttur og loftþéttur með yfirstykki að aftan. Hanskar áfastir ermum. Hlífar á hnjám og olnboga. Tveir loftlokar. Teygja ásamt ístaði í skálmum. Neyðartenging fyrir loftslöngu. Alhliða notkun með reykköfunartækjum inni í búningnum. Ein stærð. Splash 2000 Bæklingur Splash 2000P bæklingur |
| TRELLCOVER Hlífðarbúningur fyrir eiturefnabúninga þar sem unnið er við mjög lágt hitastig -70°C. Úr polyamide efni húðuðu með silicone. Rauðir að lit. Jakki, buxur og hanskar (þrír fingur). Hetta með PVC glugga. Ein stærð |
|
Trellcover Bæklingur
Trellcover Jakki T gerð Trellcover Jakki TE gerð Trellcover Buxur Trellcover Hanskar |
| AKVAREX Hlífðarbúningur fyrir eiturefnabúninga þar sem unnið er við mikinn hita. Fatnaðurinn endurkastar um 90%. Úr polyester efni klæddu með álfilmu ásamt eldvörðu rayon efni. Silfurlitaðir. Jakki, buxur og hanskar (þrír fingur). Hetta með PVC gullhúðum glugga. Ein stærð. Akvarex Jakki Akvarex Buxur Akvarex Hanskar Akvarex Hlífðarskór |
| TRELLCHEM-HOOD (TC-HOOD) Hlíf þ.e. á höfuð og bol til að verja reykköfunartæki frá eiturefnum. Úr Polyamide PCV þakið á báða fleti. Rauð að lit. Ein stærð. |
| TRELLCHEM HANSKAR Aukahanskar. Trellchem Viton/Butyl Gúmmí hanskar fimm fingra Trellchem Butyl Gúmmí hanskar fimm fingra Trellchem Chloroprene Gúmmí hanskar fimm fingra Trellchem HPS/VPS Gúmmí hanskar ytri fimm fingra Trellchem HPS/VPS Hanskar innri fimm fingra Trellchem PVC Gúmmí hanskar ytri fimm fingra Trellchem Bómullarhanskar innri fimm fingra |
| TRELLCHEM STÍGVÉL Aukastígvél. Stærðir 41/7,5, 43/9, 45/10, 46/11. |
| Til viðhalds og eftirlits með búningum er hægt að fá til þess sérstök verkfæri og búnað. Sjá bækling. |












