Slökkvilið Seyðisfjarðar


Fjórtánda bifreiðin var byggð fyrir Slökkvilið Seyðisfjarðar. Undirvagn af MAN 19.364 FAK gerð með 360 hestafla vél, fjórhjóladrifna með sídrif, læsingum og 16 gíra kassa. 

Mannskapshús er fyrir fjóra. Heildarlestun þ.e. bifreiðin fullbúin í útkall er um 79% en vatnstankur er 4.000 l. og froðutankur 200 l.

Rosenbauer slökkvidæla (NH30) afkastar 3.000 l. við 10 bar og 400 l. mín við 40 bar. Dælan er búin tveimur sjálfstæðum froðukerfum þannig að hægt er að hafa froðu á háþrýsti hliðinni og hreint vatn á lágþrýstihliðinni eða froðu á báðum samtímis.

Á höfninni á Seyðisfirði eftir kennslu.

Helsti búnaður til viðbótar eru tvö 60 m. 1" rafdrifin slöngukefli með Rosenbauer Ne-Pi-Ro háþrýstibyssum staðsett í öftustu hliðarskápum, loftdrifið ljósamastur 3 x 500W hæð 4,6 m beintengt Hondu rafstöð, Raufoss 10 m. þrískiptur brunastigi, Hella ljóskastarar, Huma reykköfunartækjastólar og tengingar fyrir talstöð og síma.

Hondu rafstöð, slöngurekkar, ýmsar festingar, verkfæraveggir, verkfæri og hillur. Hitatúba í vatnstanki, 3 stk. 5" sogbarkar á þaki.

Útdraganlegur pallur fyrir Lucas björgunartæki.

Orkuhlutfall þessarar bifreiðar er um 24 hestöfl á hvert tonn.

Yndislegt veður við afhendingu

Myndin að ofan er frá afhendingu slökkvibifreiðarinnar en hún fór fram í 28°C hita á Seyðisfirði og það er bæjarstjórinn sem er sá léttklæddi.